Bréfin hennar mömmu

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2022 284 3.990 kr.
spinner
Rafbók 2022 3.690 kr.
spinner
Hljóðbók - streymi 2022 App 3.990 kr.
spinner

Bréfin hennar mömmu

3.690 kr.3.990 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2022 284 3.990 kr.
spinner
Rafbók 2022 3.690 kr.
spinner
Hljóðbók - streymi 2022 App 3.990 kr.
spinner

Um bókina

Í kjallaranum á Bessastöðum var geymd gömul blá taska. Gerð úr þunnum málmi, beygluð og illa farin, læsingarnar lítið eitt ryðgaðar. Þessi taska hafði fylgt fjölskyldu Ólafs Ragnars allt frá æskuárum hans á Ísafirði en var aldrei opnuð fyrr en að lokinni forsetatíð. Þá kom í ljós fjöldi bréfa sem móðir hans, Svanhildur Hjartar, skrifaði eiginmanni sínum, Grími, árum saman á berklahælum, lengst af á Vífilstöðum en einnig á Kristnesi og sjúkrahúsum í Reykjavík og á Akureyri. Bréfin eru einstæð heimild um glímu þjóðarinnar við hvíta dauðann, eins og faraldurinn var tíðum nefndur.

Á fyrri hluta síðustu aldar voru berklar ein helsta dánarorsök Íslendinga. Þúsundir létust, einkum ungar konur. Bréfin birta á opinskáan, nístandi og sársaukafullan hátt sögu Svanhildar og fjölskyldunnar og lýsa um leið erfiðu skeiði þjóðarinnar. Leiða lesandann inn í veröld hinna sjúku í persónulegum frásögnum sem snerta hjörtu allra.

Uppruni og æska Ólafs Ragnars birtast hér í nýju ljósi. Hann skrifar inngangskafla og milliþætti sem tengja bréfin við nútímann.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafraHér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.

Hljóðbókin er 8 klukkustundir og 45 mínútur að lengd. Ólafur Ragnar Grímsson og Valgerður Guðnadóttir lesa.

Hér má hlusta á brot úr hljóðbókinni:

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Bréfin hennar mömmu”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur

Products not found

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning