Heimili höfundanna

Sölvi Sveinsson
Sölvi Sveinsson
Sölvi Sveinsson er fæddur á Sauðárkróki árið 1950. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri, lauk síðan BA-prófi í íslensku og sagnfræði frá Háskóla Íslands og cand. mag.-prófi í sögu frá sama skóla 1980. Þá las hann einnig uppeldis- og menntunarfræði við HÍ. Sölvi starfaði um tíma hjá Alþingi og síðar við kennslu í grunn- og framhaldsskólum. Frá 1998 til 2005 var hann skólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla og síðan Verzlunarskóla Íslands til 2008. Þá tók við starf hjá menntamálaráðuneytinu og loks gegndi hann starfi skólastjóra Landakotsskóla 2010–2014. Sölvi hefur skrifað allnokkrar bækur, einkum um íslenskt mál og málsögu, bæði kennslubækur fyrir framhaldsskóla og fræðirit ætluð almenningi. Einnig hefur hann skrifað kennslubók um norræna goðafræði. Þá hefur hann gefið út endurminningabók, birt ferðaþætti og skrifað fjölda greina og pistla í bækur og tímarit um söguleg efni, móðurmálið o.fl. Bækur Sölva um íslenskt mál hafa notið mikilla vinsælda og hlotið góða dóma; þær eru greinargóðar og aðgengilegar og opna almenningi nýja sýn á rætur og merkingu orða, orðtaka, málshátta og tákna. Kennslubækur hans hafa einnig verið mikið notaðar í framhaldsskólum.

Bækur eftir höfund

eilífð í sjónmáli
Eilífð í sjónmáli
2.590 kr.
Eyþór Stefánsson
5.590 kr.
Lög unga fólksins
Lög unga fólksins
3.290 kr.
Geymdur og gleymdur orðaforði
Geymdur og gleymdur orðaforði
5.590 kr.
Dagar handan við dægrin
Dagar handan við dægrin
5.490 kr.
Táknin í málinu
Táknin í málinu
4.965 kr.
Íslenskir málshættir & íslensk orðtök pakki
Íslenskir málshættir & íslensk orðtök pakki
8.290 kr.
Saga orðanna
Saga orðanna
4.690 kr.
Íslensk orðtök
Íslensk orðtök
5.190 kr.
Íslenskir málshættir
Íslenskir málshættir
5.190 kr.
attachment-8467
Íslensk málsaga
4.190 kr.
attachment-606049
Guðirnir okkar gömlu ásamt Snorra-Eddu
5.900 kr.

INNskráning

Nýskráning

nýskráning