Heimili höfundanna

Sigurbjörg Þrastardóttir
Sigurbjörg Þrastardóttir
Sigurbjörg Þrastardóttir er fædd 27. ágúst 1973 á Akranesi. Hún lauk B.A.-prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands 1997 og prófi í hagnýtri fjölmiðlun frá sama skóla 1998. Fyrsta ljóðabók Sigurbjargar, Blálogaland, kom út árið 1999. Ári síðar kom út ljóðabókin Hnattflug sem hlaut góðan meðbyr og var til að mynda valin besta ljóðabók vertíðarinnar af starfsfólki bókaverslana. Í bókinni er ferðast um borgir, götur, fjöll, höf og aðra raunverulega staði í myndrænum ljóðum. Ljóð úr þriðju bókinni, Túlípanafallhlífum, hafa verið þýdd á ýmis tungumál og birt í safnbókum, tímaritum og á bókmenntavefjum. Sigurbjörg hefur komið fram á ljóðahátíðum í Evrópu og fjallað hefur verið um ljóðagerð hennar í króatísku, hollensku og frönsku bókmenntapressunni svo nokkuð sé nefnt. Í Svíþjóð var gefið út ljóðaúrvalið Fallskärmsresor. Af leikverkum má nefna Þrjár Maríur (2004 á Litla sviði Borgarleikhússins), uppistandið Maður og kona: Egglos (Leikfélag Akureyrar, 2003) og leikgerð Gunnlaðar sögu eftir Svövu Jakobsdóttur (í Hafnarfjarðarleikhúsinu 2005). Skáldsagan Sólar saga kom út haustið 2002 og fjallar um unga stúlku sem gengur í gegnum erfiða lífsreynslu á Ítalíu en finnur öryggið aftur á sérstæðan hátt. Fyrir handrit bókarinnar hlaut Sigurbjörg Bókmenntaverðlaun Reykjavíkurborgar sem kennd eru við Tómas Guðmundsson árið 2002.

Bækur eftir höfund

Krossljóð_kápa
Krossljóð
3.990 kr.
Blysfarir
Blysfarir
990 kr.
Mæður geimfara
Mæður geimfara
3.890 kr.
Hryggdýr
Hryggdýr
3.390 kr.
Óttaslegni trompetleikarinn
Óttaslegni trompetleikarinn og aðrar sögur
990 kr.3.390 kr.
Kátt skinn
Kátt skinn (og gloría)
3.520 kr.
Stekk eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur
Stekk
990 kr.1.990 kr.
Brúður eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur
Brúður
2.325 kr.
attachment-15922
Sólar saga
2.065 kr.
attachment-14456
Hnattflug
1.955 kr.

INNskráning

Nýskráning

nýskráning