Ólafur Gunnar Guðlaugsson (f. 1964) er grafískur hönnuður að mennt. Hann er þekktastur fyrir barnabækur sínar um Benedikt búálf og lífið í Álfheimum, sem eru orðnar níu talsins og hafa hlotið lofsamlegar viðtökur gagnrýnenda. Eftir fyrstu bókinni var árið 2002 gert vinsælt leikrit með söngvum sem hefur síðan verið sett upp víða um land og einnig komið út á myndbandi.
Árið 2021 hlaut Ólafur Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir barna- og unglingabókina Ljósbera. Henni fylgdi hann eftir með tveimur framhaldsbókum, Ofurvættir (2022) og Návaldið (2023).