Kristín Marja Baldursdóttir er fædd í Hafnarfirði 1949. Hún lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands og síðar BA-prófi í þýsku og íslensku frá Háskóla Íslands. Kristín starfaði bæði sem kennari og blaðamaður í Reykjavík og bjó auk þess erlendis um skeið áður en hún sendi frá sér sína fyrstu skáldsögu.
Frumraunin Mávahlátur kom út árið 1995 og vakti geysimikla athygli, meðal annars fyrir frásagnargleði og beittan húmor sem einkennir sömuleiðis þau verk Kristínar sem á eftir komu. Leikgerð sögunnar var nokkru síðar sett upp á stóra sviði Borgarleikhússins og enn síðar var gerð eftir henni samnefnd kvikmynd sem naut mikilla vinsæda og hlaut fjölda Edduverðlauna.
Síðari skáldsögur Kristínar Marju hafa einnig notið mikillar hylli og þykja gjarnan gera sögu og aðstæðum kvenna fyrr og síðar góð og eftirminnileg skil, ekki síst tveggja bóka stórvirki hennar um listakonuna Karitas; Karitas án titils og Óreiða á striga – einhverjar vinsælustu íslensku skáldsögur síðari ára, en upp úr þeim var einnig unnið leikhúsverk. Kristín Marja hefur jafnframt skrifað smásögur og greinar, sem og fleiri leikrit, og hún var útnefnd leikskáld Borgarleikhússins 2012–2013.
Kristín Marja hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir skrif sín, meðal annars Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar, verðlaun úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins og Fjöruverðlaunin. Þá var skáldsagan Karitas án titils (útg. 2004) tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Bækur Kristínar hafa verið þýddar og gefnar út á Norðurlöndunum, í Þýskalandi, Frakklandi og víðar við miklar vinsældir.