Gata mæðranna

Útgefandi: JPV
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 243 3.490 kr.
spinner
Mjúk spjöld 2020 243 3.490 kr.
spinner
Rafbók 2020 1.490 kr.
spinner
Hljóðbók - streymi 2020 App 3.990 kr.
spinner

Gata mæðranna

Útgefandi : JPV

1.490 kr.3.990 kr.

Gata mæðranna
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 243 3.490 kr.
spinner
Mjúk spjöld 2020 243 3.490 kr.
spinner
Rafbók 2020 1.490 kr.
spinner
Hljóðbók - streymi 2020 App 3.990 kr.
spinner

Um bókina

Hún kyssti hann þótt hún væri ekki í neinu skapi fyrir kossaflens þá stundina en hann var vel upp-lagður og gerði kossinn að einum þeim lengsta í sögunni. Þegar hún losaði sig úr faðmi hans sagði hann og gat ekki stillt sig: það fór þó aldrei svo að þú fengir ekki herbergi í götunni.

Á kvöldin situr Marín innan við glerið í miðasölunni, teiknar og lætur hugann reika. Hún er á leið út í lífið eftir stúdentspróf, óviss um hvað bíður hennar og hvers hún óskar sér. Leit hennar að leiguherbergi leiðir hana hús úr húsi, frá einni konu til annarrar. Allar eiga þær sögur og drauma, en í kring sveima karlar með sínar hugmyndir og ráðagerðir.

Gata mæðranna gerist á sjöunda áratugnum og hlutverk kynjanna eru skýr. Heima í götunni ráða konurnar ríkjum, þar er þeirra veröld, með börnum og þvottum, glápi og skvaldri – en líka leyndarmálum og ósögðum orðum, ástleysi og ást.

Kristín Marja Baldursdóttir er þekkt fyrir magnaðar og grípandi skáldsögur sínar þar sem margt býr undir yfirborðinu. Með hárbeittum húmor og djúpu innsæi skapar hún ógleymanlegar persónur og áhrifaríkar örlaga­sögur sem heilla lesendur heima og erlendis.

 

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 7 klukkustundir og 14 mínútur að lengd. Höfundur les.

Hér má hlusta á fyrsta kafla hljóðbókarinnar:

2 umsagnir um Gata mæðranna

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur