Kári Tulinius er einn af stofnendum Meðgönguljóða. Hann gaf út sína fyrstu bók, skáldsöguna Píslarvottar án hæfileika, árið 2010 og næstu skáldsögu, Móðurhug, 2017. Árið 2015 kom ljóðabókin Brot hætt frum eind. Að auki hefur hann unnið að samvinnuverkum, ljóðabækurnar Þungir forsetar (ásamt skáldinu Valgerði Þóroddsdóttur) og Dilmun (ásamt listamanninum Timo Rychert). Einnig gerði sænski leikhópurinn PotatoPotato leikgerð á fyrstu skáldsögu hans sem nefndist Talanglösa Martyrer og var sýnt víða á Norðurlöndum.