Heimili höfundanna

Hildur Knútsdóttir
Hildur Knútsdóttir
Hildur Knútsdóttir er fædd 1984. Hún er fjölhæfur, hugmyndaríkur og afkastamikill höfundur sem skrifar bæði fyrir börn og fullorðna og velur sér sögusvið jöfnum höndum úr hversdeginum og heimi furðusagna – stundum á mörkum beggja þessara heima. Fyrsta skáldsaga hennar, Sláttur, kom út 2011. Vetrarfrí, sem er skáldsaga af furðusagnaætt ætluð ungmennum, hlaut Fjöruverðlaunin 2015 og framhaldsbókin Vetrarhörkur fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin 2016. Doddi: Bók sannleikans, sem hún skrifaði ásamt Þórdísi Gísladóttur var tilnefnd bæði til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar og Fjöruverðlaunanna 2017. Þá var Hildur tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Ljónið í flokki barna- og ungmennabóka árið 2018 og hlaut Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar 2019 fyrir sömu bók. Hildur er með BA-gráðu í bókmenntum og skapandi skrifum frá Háskóla Íslands. Hún býr í Reykjavík.

Bækur eftir höfund

Hrim_Kapa.indd
Hrím
2.990 kr.5.490 kr.
Urdarhvarf _72pt
Urðarhvarf
2.990 kr.3.690 kr.
NuernogKomid_72pt
Nú er nóg komið !
1.990 kr.4.490 kr.
myrkrid_milli stjarnanna_72
Myrkrið milli stjarnanna
1.990 kr.3.990 kr.
  • 2
  • 3
  • 4