Vonarstjarna eftir Noru Roberts er þriðja bókin í Boonsboro-þríleiknum, áður komu Biðlund um elsta Montgomery-bróðurinn og ekkjuna ungu, og Einhvern daginn þar sem fylgst var með miðbróðurnum og æskuástinni hans.
Sagan segir af Hope sem nýtur þess að hugsa um gistihús Montgomery-fjölskyldunnar þó að það sé lítið í samanburði við lúxushótelið sem hún stýrði áður. En ástarlífið er dauflegt, og þótt stundum neisti á milli þeirra Ryders Montgomery eftir kossinn á nýársnótt getur ekkert samband orðið úr því – til þess er hann allt of hrjúfur og ómannblendinn og hún of ráðrík og þver. Heitustu tilfinningarnar sem krauma á gistihúsinu er þrá húsdraugsins Lizzy eftir sínum löngu horfna elskhuga sem reynist þrautin þyngri að finna.
Nora Roberts er vinsælasti ástarsagnahöfundur Bandaríkjanna og allar bækur hennar frá 1999 hafa komist á metsölulista New York Times. Þær hafa verið gefnar út í tugum landa og selst í yfir 500 milljónum eintaka.
Halla Sverrisdóttir þýddi.