Grimmsævintýri

Úrvals þýðendur og úrvals verk

Fimmtudaginn 14. apríl kl. 20 verður haldið þýðendakvöld í Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8, 104 Reykjavík og kynntir þeir fimm þýðendur og verk þeirra sem tilnefnd eru til Íslensku þýðingaverðlaunanna í ár. Verkin eru að vanda fjölbreytt og ólík og tilnefndu þýðendurnir hafa ljúfmannlega fallist á að spjalla við áheyrendur um verkin, starf sitt og glímuna við orðin. Dagskrá verður sem hér segir:

Silja Aðalsteinsdóttir: Grimmsævintýri, Philip Pullman tók saman og endursagði (Útgefandi: Mál og menning).
Grimmsævintýri eru hluti af evrópskum menningararfi og útgáfa breska rithöfundarins Philip Pullmans færir ævintýrin nær uppruna sínum og um leið nær samtímanum með beinskeyttu og nútímalegu málfari. Silja Aðalsteinsdóttir þýðir ævintýrin af smekkvísi og beitir orðfæri sem er í senn einfalt og aðgengilegt en líka kraftmikið og kryddað. Það eykur gildi útgáfunnar að Silja hefur víða skotið inn skýringum sem tengja sagnaheiminn íslenskum ævintýrum.

Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson: Nýsnævi – safn ljóðaþýðinga eftir 15 höfunda (Útgefandi: Dimma).
Nýsnævi hefur að geyma þýðingar Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar á ljóðum fimmtán skálda frá ellefu Evrópulöndum. Í bókinni gefur Aðalsteinn forvitnilega innsýn í verk margra helstu ljóðskálda samtímans þar sem heilsteypt rödd þýðandans fylgir lesandanum í ferð um hugarheima ólíkra höfunda.

Ásdís R. Magnúsdóttir: Rangan og réttan – Brúðkaup – Sumar – þrjú ritgerðarsöfn eftir Albert Camus (Útgefandi: Háskólaútgáfan).
Franski rithöfundurinn og heimspekingurinn Albert Camus er eðlilega þekktastur fyrir skáldverk sín, en til þess að fá fyllri mynd af skáldinu þarf að kynnast essayistanum og því er það fengur að þessi þrjú ritgerðasöfn Camus komi út í íslenskri þýðingu. Þýðing Ásdísar R. Magnúsdóttur er nákvæm og frumtextanum trú, en líka lifandi og læsileg.

Brynja Cortes Andrésdóttir: Ef að vetrarnóttu ferðalangur eftir Italo Calvino (Útgefandi: Ugla).
Ef að vetrarnóttu ferðalangur er póstmódernískt ævintýri þar sem Italo Calvino leikur sér með lesandann og gerir hann að hetju í bók sem fjallar um lestur bóka, sem er skáldskapur um skáldskapinn. Þýðing Brynju Cortes Andrésdóttur er leikandi og ljóðræn og skilar afbragðsvel tærum og lifandi stíl Calvino.

Jón Hallur Stefánsson: Spámennirnir í Botnleysufirði eftir Kim Leine (Útgefandi: Bókaútgáfan Sæmundur).
Í Spámönnunum í Botnleysufirði fléttar Kim Leine saman skáldskap og sögulegu efni og rekur þannig sögu Grænlands og Grænlendinga undir lok átjándu aldar og árekstrum ólíkra menningarheima þar sem boðskapur kristinnar trúar verður innfæddum kveikja að átökum við dönsku herraþjóðina. Kim Leine lýsir harkalegum heimi sem er líka þrunginn hrikalegri fegurð og afbragðsþýðing Jóns Halls Stefánssonar nær að fanga grimmdina og fegurðina í frásögninni.

Aðgangur er ókeypis og öllum frjáls meðan húsrúm leyfir.

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning