Ragna Sigurðardóttir

Vináttan er björgunarhringur

Í dag sendir verðlaunahöfundurinn Ragna Sigurðardóttir frá sér nýja bók, áleitna samtímaskáldsögu sem ber nafnið Vinkonur.

„Hún kipptist við eins og rafmagnsstraumur færi um hana, skytist út í hendur og niður í fætur. Hann bar nafnið fram eins og útlendingur. Hann átti þá erindi við hana. Þetta var ekki ótíndur innbrotsþjófur heldur einhver sem vissi hver hún var. Hafdís Hannesdóttir dómsmálaráðherra.“

Dimma septembernótt vaknar Hafdís við framandi hljóð. Er óboðinn gestur í húsinu? Heilsan er tæp enda gríðarlegt álag í ráðuneytinu, málefni hælisleitenda hafa vakið reiði í samfélaginu svo mótmælt er á götum úti. Á þeim vettvangi skýtur gömul vinkona upp kollinum og Hafdís neyðist til að rifja upp örlagaríkan vetur í Austurbæjarskóla fyrir aldarfjórðungi.

Vinkonur er sterk samtímasaga um vináttu og traust, þá sem tilheyra og hina sem er útskúfað. Ragna Sigurðardóttir hefur sent frá sér fimm skáldsögur sem vakið hafa athygli og fyrir þá fyrstu, Borg, hlaut hún tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning