Snaran

Útgefandi: Forlagið
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2021 App 1.990 kr.
spinner
Kilja 2009 2.290 kr.
spinner

Snaran

Útgefandi : Forlagið

1.990 kr.2.290 kr.

Snaran
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2021 App 1.990 kr.
spinner
Kilja 2009 2.290 kr.
spinner

Um bókina

Skáldagan Snaran vakti mikla athygli þegar hún kom út árið 1968. Sagan er eintal – eða öllu heldur samtal þar sem rödd annars þátttakandans heyrist ekki – og er frásagnarformið einstakt í íslenskum bókmenntum.

Við erum stödd í óljósri framtíð. Stóriðja er helsti atvinnuvegurinn og erlent fjármagn og vinnuafl hefur flætt inn í landið. Nöpur ádeila sögunnar kemur ekki síst fram í mannlýsingu sögumannsins, sópara í verksmiðju, orðum hans, skoðunum og viðbrögðum. Hann segir sögu sína og þjóðarinnar, allt frá komu erlends herliðs á stríðsárunum og þeim þjóðfélagsbreytingum sem henni fylgdu og rekur hana allt til samtíma sögunnar. Er sá tími kannski runninn upp nú?

Jakobína Sigurðardóttur (1918–1994) var fædd í Hælavík á Hornströndum en var lengst af ævinnar húsmóðir í Garði í Mývatnssveit. Hún var einn virtasti rithöfundur landsins og sendi frá sér skáldsögur, smásögur og ljóðabækur. Þrjár skáldsagna hennar, Dægurvísa, Snaran og Lifandi vatnið voru valdar sem framlag Íslands til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

Snaran hefur verið ófáanleg um árabil en kemur nú í Klassíska kiljuklúbbnum.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafraHér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 3 klukkustundir og 17 mínútur að lengd. Arnar Jónsson les.

2 umsagnir um Snaran

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur

Products not found

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning