Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 191 | Verð 3.490 kr. |
Virka daga kl. 10-18
Laugardaga kl. 11-16
Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636
2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is
5 umsagnir um Skriftir
Árni Þór –
„… ekkert er sjálfsagt eða auðvelt við það hvernig Pétri tekst að veita kímni og kærleika inn í tungumálið svo að lýsingar á hversdagslegum atburðum bókstaflega ljóma af ástúð … Afrekið felst að hluta til í því sem ekki er gert –veruleikatenging er ekki rofin, flóknir hlutir ekki smættaðir í væmni og klisjur – og svo í því að hafa fundið hjáleið í kringum það gríðarstóra vandamál að ætla að færa í orð það sem engin orð geta náð yfir.“
Björn Þór Vilhjálmsson / Hugrás
Árni Þór –
„Bernskan öll og æskan er bráðskemmtilegar í meðförum Péturs, ekki spilla fyrir ótrúlegustu úrklippur, bréf og miðar sem hann kryddar frásögnina með … Pétur er skemmtilegur penni – en honum ferst líka vel að róa á djúpin og hefur hann varla verið persónulegri í skrifum sínum áður … Sem saga af því þegar skáld verður til er bókin einkar ánægjuleg lesning – en það er hún í rauninni hvernig sem svo sem maður snýr henni.“
Maríanna Clara Lúthersdóttir / Morgunblaðið
Árni Þór –
„Það er eitthvað við það hvernig Pétur Gunnarsson skrifar. Eitthvað við hlýjuna og kímnina í því hvernig hann sér heiminn og miðlar honum … Sumar setningarnar eru svo fagurmótaðar að þær ættu heima í sérprenti, svona „Gullkorn úr penna Péturs Gunnarssonar“, eða á einhverjum stað í heilanum þar sem væri auðvelt að grípa til þeirra þegar þarf að lýsa einhverju eins og best verður á kosið … Falleg og skemmtileg bók um það hvernig fólk verður að sjálfu sér.“
Brynhildur Björnsdóttir / Fréttablaðið
Árni Þór –
„Fyrir aðdáendur Péturs er þetta eins og fjársjóðskort … Ég heillast af þessum heimi, þessi innliti inn í hugskot Péturs …“
Þorgeir Tryggvason / Kiljan
Árni Þór –
„Einn af okkar öndvegishöfundum.“
Egill Helgason / Kiljan