Rumpuskógur 2: Látum feldi fljúga!

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2023 245 3.590 kr.
spinner

Rumpuskógur 2: Látum feldi fljúga!

3.590 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2023 245 3.590 kr.
spinner

Um bókina

Æsispennandi og kostuleg ævintýri borgarrefanna og systkinanna Nönnu og Tedda halda hér áfram. Nú búa þau í Rumpuskógi og óvæntur gestur birtist. Þetta er einkar reffilegur refur en er hann með hættulegar áætlanir á prjónunum? Sprenghlægileg og spennandi bók, sem er skemmtilega myndlýst af höfundi.

Rumpuskógur: látum feldi fljúga eftir Nadiu Shireen er önnur bók í geysivinsælli ritröð um rebbasystkinin Tedda og Nönnu, fyrsta bókin, Rumpuskógur, kom út árið 2022. Nú eru Teddi og Nanna búin að koma sér vel fyrir í Rumpuskógi og lífið leikur við þau og öll hin dýrin í skóginum. Dag einn kemur óvæntur gestur í heimsókn, það er refurinn mikli hann Skröggur skrens, borgarstjóri Glitskógar. Skröggur segist eiga tilkall til Rumpuskógar og ætli sér að taka stjórnina. Tekst honum það ætlunarverk? Ekki getur það verið auðvelt þegar Nanna, Teddi og allir vinirnir snúa bökum saman og verja Rumpuskóginn sinn kæra.

Rumpuskógur: látum feldi fljúga er ótrúlega fyndið, skemmtilegt og þrælspennandi gamanævintýri sem gefur lesandanum stórkostlega lestrarupplifun. Myndlýsingar höfundar endurspegla húmorinn, spennuna og gleðina í textanum.

Nadia Shireen er breskur barnabókarithöfundur og myndhöfundur. Hún hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda og er afar vinsæl meðal ungra lesenda sinna. Rumpuskógur: látum feldi fljúga er ellefta bók höfundar.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Rumpuskógur 2: Látum feldi fljúga!”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur