Náðarkraftur
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2003 | 237 | 1.190 kr. | ||
Kilja | 2005 | 237 | 990 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2003 | 237 | 1.190 kr. | ||
Kilja | 2005 | 237 | 990 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Um bókina
Náðarkraftur er fjölskyldusaga. Sonurinn á heimilinu þarf að segja foreldrum sínum frá því að lag eftir hann hafi komist í lokaumferð Evróvisjon-keppninnar – sem hann veit að mun hryggja þau – og dóttirin þarf að gera upp hug sinn um það hvort hún eigi að yfirgefa mannsefnið sitt, ungan og efnilegan Evrópusinna, fyrir sænskan blúsara sem hún veit ekki að er sennilega erfingi að miklum auði.
Móðirin er prestur sem glímir við það að skyggnigáfan úr bernsku tekur sig upp, en faðirinn er fyrrverandi þingmaður sósíalista sem nú ræktar garðinn sinn. Þetta eru síðustu sósíalistarnir, hugsjónir þeirra eru almennt aðhlátursefni og yfir þeim hvílir skuggi brostinna drauma. Samt safnast þau saman á kvöldin og syngja Gracias a la vida …
Áleitin og hrífandi skáldsaga eftir einn af okkar albestu höfundum.