Ljóðmæli 5 – Hallgrímur Pétursson

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2023 328 4.990 kr.
spinner

Ljóðmæli 5 – Hallgrímur Pétursson

4.990 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2023 328 4.990 kr.
spinner

Um bókina

Fimmta bindið í fræðilegri heildarútgáfu á verkum Hallgríms Péturssonar (1614–1674).
Út er komið fimmta bindið í fræðilegri heildarútgáfu á verkum Hallgríms Péturssonar (1614–1674). Efni þessa bindis eru lausavísur og nokkur lengri kvæði, flest gamansöm. Vísurnar fjalla oft um hversdagslega hluti eins og mat og matarneyslu og stundum um misskiptingu veraldlegra gæða. Sumar lýsa barnaleikjum, aðrar eru heillaóskir og einnig eru hér gátur í vísnaformi. Lausavísur eru oft tengdar ákveðnu atviki og hafa yfirleitt varðveist í munnlegri geymd lengi áður en þær voru skrifaðar upp enda eru lausavísur Hallgríms yfirleitt varðveittar í yngri handritum en annar kveðskapur hans. Texti hvers kvæðis er prentaður stafréttur eftir aðalhandriti eða prentaðri útgáfu en orðamunur úr öðrum handritum er birtur neðanmáls. Gerð er rækileg grein fyrir varðveislu hvers kvæðis auk þess sem handritunum sem við sögu koma er lýst í sérstakri skrá. Þetta er lokabindið í þeim hluta útgáfunnar sem nefnist Ljóðmæli.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Ljóðmæli 5 – Hallgrímur Pétursson”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur