Hetjur
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2009 | 173 | 1.790 kr. | ||
Kilja | 2010 | 173 | 1.090 kr. | ||
Geisladiskur | 2010 | CD | 2.290 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 1.490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2009 | 173 | 1.790 kr. | ||
Kilja | 2010 | 173 | 1.090 kr. | ||
Geisladiskur | 2010 | CD | 2.290 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 1.490 kr. |
Um bókina
Bókin fjallar um Þórhall sem er fluttur með fjölskyldunni sinni til Þrándheims í Noregi. Hann þekkir engan í skólanum og gengur undir nafninu Túrhalur Túrdarson. Eins og það sé ekki nógu slæmt þá gnæfir löngu dauður kóngur yfir og allt um kring eins og hann væri enn í fullu fjöri. Af hverju halda allir að það sé eitthvað gaman að búa í útlöndum? Og hvernig í ósköpunum á ellefu ára strákur úr Hlíðunum að lifa þetta af?
Kristín Steinsdóttir er margverðlaunaður rithöfundur en fyrsta bók hennar, Franskbrauð með sultu, kom út árið 1987. Hún hefur skrifað bækur fyrir lesendur á öllum aldri.
Hér fléttar hún fornum sögum við nútímaatburði og vangaveltur um hvað það felur í sér að vera hetja. Það er enda alls ekkert einfalt mál … eða hvað?
Kennsluleiðbeiningar og verkefnahefti fyrir nemendur má fá á Kennarasvæði Forlagsins.
ATH. Tvær gerðir hljóðbóka eru í boði fyrir þessa vöru. Hljóðbókina má kaupa á geisladiski (CD eða Mp3) sem sendist í pósti en einnig sem streymishljóðbók (Streymi) sem er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur í streymi.
Hljóðbókin er 3 klukkustundir og 40 mínútur að lengd. Höfundur les.