Franskbrauð með sultu
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2007 | 1.025 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 1.390 kr. |
Franskbrauð með sultu
1.025 kr. – 1.390 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2007 | 1.025 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 1.390 kr. |
Um bókina
Lilla er nýorðin tíu ára og ætlar að dvelja sumarlangt hjá ömmu sinni og afa í litlum kaupstað austur á fjörðum. Í fyrstu er hún feimin og vondauf um að sumarið verði skemmtilegt en annað kemur á daginn. Fljótlega eignast hún fjölda vina og dregst inn í leiki og ævintýri krakkanna í þorpinu.
Í þessari skemmtilegu sögu flytur Kristín Steinsdóttir lesendur sína inn í fjörugt kaupstaðarlíf sumarið 1955 þegar Tarzan er sýndur í þrjúbíó og síldin ræður lögum og lofum.
Fyrir þessa bráðskemmtilegu sögu hlaut Kristín Steinsdóttir Íslensku barnabókaverðlaunin árið 1987. Bókin var fyrsta barnabók höfundarins sem síðan hefur sent fré sér fjölda bóka og hlotið margar viðurkenningar fyrir verk sín, þ.á.m. Norrænu barnabókaverðlaunin.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 136 mínútur að lengd. Höfundur les.