Dróttkvæði

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2023 259 6.390 kr.
spinner

Dróttkvæði

6.390 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2023 259 6.390 kr.
spinner

Um bókina

Dróttkvæðin voru einkum flutt við hirðir konunga og annarra höfðingja til forna. Orðið drótt merkir hirð og af því orði er nafn þessarar kveðskapargreinar fengið. Dróttkvæðin koma fram á tíundu öld og bragarhátturinn, dróttkvæður háttur, varð snemma tilkomumikill og bundinn  innrími og strangri stuðlasetningu. Trúlega hefur þessi hljómmikli og flókni háttur þótt hæfa við konungshirðir. Íslendingar létu óvenju mikið að sér kveða sem skáld á þessum vettvangi og þágu laun fyrir kvæði sín. 

Ekkert safnrit með úrvali úr þessum kveðskap hefur verið til um býsna langt skeið þar sem almennum lesendum er greið leið að þeim fjársjóði máls og orðkynngi sem við vissulega eigum fólginn í þessum 12000 ljóðlínum sem kvæðin spanna. Hér er þess freistað með allrækilegum skýringum og fræðslu um tilefni hverrar vísu að færa þetta efni nær almenningi.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Dróttkvæði”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur