Depurð: Af hverju líður okkur svona illa þegar við höfum það svona gott?

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2023 211 4.890 kr.
spinner

Depurð: Af hverju líður okkur svona illa þegar við höfum það svona gott?

4.890 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2023 211 4.890 kr.
spinner

Um bókina

Mikilvægasta hlutverk heilans er að lifa af, ekki að líða vel.

Þegar okkur líður illa andlega er auðvelt að ímynda sér að eitthvað sé að. Þá er gott að láta minna sig á að kvíði og depurð eru náttúrulegt ástand, leifar langt aftan úr forneskju þegar lífsbaráttan var hörð og við áttum sífellt  á hættu að deyja úr hungri eða af völdum sýkinga.

Við erum ekki gerð til þess að upplifa stöðuga vellíðan og hamingju – ef svo væri hefðu forfeður okkar ekki náð að lifa af og viðhalda lífkeðjunni. En bjargráðin eru til staðar.

Geðlæknirinn Anders Hansen útskýrir hér á aðgengilegan hátt ákveðna þætti í virkni heilans og hvað við getum gert til að létta okkur róðurinn.

Anders Hansen (f. 1974) er sænskur geðlæknir, fyrirlesari og vinsæll sjónvarpsmaður, en hann hefur gert þáttaraðir um huga og heilsu.

Grundvallarspurning hans í þessari bók er hvers vegna okkur líði svona illa þegar við höfum það svona gott. Hann skoðar líðan okkar og tilfinningar út frá sjónarhóli heilans; útskýrir á afar læsilegan og aðgengilegan hátt hvernig heilinn stjórnar andlegri líðan og hvað við getum gert til að okkur líði betur í samfélagi þar sem ört vaxandi hópur á við andlega vanlíðan að stríða. Bjargráðin eru til staðar.

 

Depurð og kvíði, innan ákveðinna marka, eru eðlilegt ástand. En bjargráðin eru til staðar. Með því að hugsa um líkamann, læra inn á virkni heilans og nýta okkur hreyfingu á markvissan hátt getum við létt á andlegum þyngslum, kvíða og depurð. 

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Depurð: Af hverju líður okkur svona illa þegar við höfum það svona gott?”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur

Products not found

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning