Blómaskeið ungfrú Jean Brodie

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2023 196 3.890 kr.
spinner

Blómaskeið ungfrú Jean Brodie

3.890 kr.

blómaskeið ungfrú jean brodie
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2023 196 3.890 kr.
spinner

Um bókina

Ungfrú Jean Brodie er enginn venjulegur kennari. Hún er ástríðufull, sjálfstæð, innblásin af rómantík og ber ekki minnstu virðingu fyrir ýmsum venjum og siðum sem skólastjórnin vill halda í heiðri. Hún laðar að sér dygga fylgjendur meðal nemenda í Marcia Blaine-stúlknaskólanum í Edinborg og þær fá brátt viðurnefnið Brodie-klíkan. Hún reynir að móta þær í sinni mynd í þeirri von að þær verði þegar þær vaxa úr grasi „crème de la crème“ eins og hún. En ekki er allt sem sýnist. Undir fáguðu yfirborði ungfrú Brodie býr ískyggilegur sannleikur og undarlegur áhugi á fasisma …

Blómaskeið ungfrú Jean Brodie er frægasta skáldsaga Muriel Spark. Eins og í flestum öðrum bókum hennar tvinnast þar saman stílsnilld, harmþrunginn undirtónn og óviðjafnanlegur húmor.

Árni Óskarsson íslenskaði.

Muriel Spark (1918–2006) var einn snjallasti skáldsöguhöfundur Breta á síðari hluta tuttugustu aldar. Áður hefur komið út eftir hana á íslensku skáldsagan Langur vegur frá Kensington.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Blómaskeið ungfrú Jean Brodie”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur