Heimili höfundanna

Stella Blómkvist
Stella Blómkvist
Ráðgátan um það hver hann sé rithöfundurinn dularfulli sem skrifar undir nafni Stellu Blómkvist hefur heillað íslenska lesendur í meira en tvo áratugi. Ýmsar misskrautlegar getgátur hafa verið á lofti. Bækur Stellu hafa meðal annars verið hermdar upp á forsætisráðherra, ýmsa af þekktustu rithöfundum þjóðarinnar og upp á þekktan bókmenntarýni. En þó hefur hvorki gengið né rekið að svipta hulunni af leyndarmálinu. Það verður að teljast afrek í jafn litlu samfélagi og hér á Íslandi. Stella sjálf lætur sér fátt um finnast og heldur sínu harðsoðna striki. Hún hefur síðan 1997 eignast fastan aðdáendahóp sem nýtur þess út í æsar að fylgjast með þessu leðurklædda glæfrakvendi og stjörnulögmanni leysa morðmál og taka bæði prúðupilta, harðsvíraða glæpamenn og kerfiskalla í nefið. Og skola síðan öllu saman niður með sopa af Nonna og vel valdri speki frá mömmu.

Bækur eftir höfund

b6395ae8-5ae6-0624-abbf-fbb0f99ff39d
Morðið í Öskjuhlíð
2.990 kr.3.690 kr.
Morðið á Bessastöðum
Morðið á Bessastöðum: Stella Blómkvist #7
990 kr.2.375 kr.
Morðið í Rockville eftir Stellu Blómkvist
Morðið í Rockville: Stella Blómkvist #6
990 kr.
Morðið í drekkingarhyl
Morðið í Drekkingarhyl: Stella Blómkvist #5
990 kr.
  • 2
  • 3
  • 4