Rut Guðnadóttir (f.1994) er höfundur unglingabókanna vinsælu um Millu, Rakel og Lilju: Vampírur, vesen og annað tilfallandi og Drekar, drama og meira í þeim dúr. Sú fyrrnefnda hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin 2020 og var tilnefnd til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur og Fjöruverðlaunanna sama ár. Sjálfstætt framhald, Drekar, drama og meira í þeim dúr, kom út haustið 2021, aðdáendum Rutar til mikillar gleði enda eru bækurnar skemmtilegar og spennandi, vel skrifaðar og af mikilli virðingu og næmi fyrir flóknum tilfinningum sem fylgja unglingsárunum.
Markmið höfundar með bókaflokknum var frá upphafi að koma fólki til að hlæja. Þegar tók að líða á skrifin fann hún þó að sá boðskapur sem hún vildi koma til skila var ekki einn, langur brandari heldur hvernig húmor og fáránleiki hjálpa okkur að takast á við lífið og tilveruna. Vinkonurnar Milla, Rakel og Lilja glíma allar við vandamál, stór og smá, og Rut fannst mikilvægt að sagan endurspeglaði raunveruleika unglinga þó að um skáldskap væri að ræða. Margir unglingar upplifa sig utangarðs, að ekki sé tekið mark á þeim, að þau hafi ekki stjórn á eigin lífi, aðstæðum og lömuð af kvíða og framtíðarótta. Á sama tíma er daglegt líf þeirra töfrum þrungið, spennandi og dramatískt.
Rut hefur lokið bakkalárnámi í sálfræði og íslensku, er með meistarapróf í ritlist og kennir þessi misserin íslensku í menntaskóla.