Jóna Valborg er fædd 1973 í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands og B.A. gráðu í íslensku, M.Paed. gráðu í íslensku og kennslufræði og MS gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Hún er með kennsluréttindi og diplóma í verkefnastjórnun. Á unglingsárum lék Jóna Valborg með hinum ýmsu áhugaleikfélögum. Hún dvaldi um hálfs árs skeið sem Erasmus-skiptinemi við dramatúrgíu-deild háskólans í Árósum.
Jóna Valborg hefur starfað við markaðs- og kynningarmál, verkefna- og viðburðastjórnun, ritstjórn, almannatengsl, mannauðsmál og sýningarstjórnun. Um tíma kenndi hún framhaldsskólanemendum íslensku, lífsleikni og leiklist. Á árunum 2004 til 2006 sat hún í ritnefnd tímaritsins Börn og menning.
Ritstörf hafa fylgt Jónu Valborgu svo lengi sem hún man eftir sér en árið 2013 kom hennar fyrsta bók út. Brosbókin hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Vorvindaviðurkenningu IBBY. Bækurnar vinnur hún með Elsu Nielsen, grafískum hönnuði og teiknara.
Vorið 2019 dvaldi Jóna Valborg um þriggja vikna skeið við skriftir í Åmål í boði AIR Litteratür Västra Götaland. Hún er félagsmaður í SÍUNG og Rithöfundasambandi Íslands og hefur á þeirra vegum tekið þátt í bókmenntaverkefninu Skáld í skólum.