Illugi Jökulsson er fæddur í Reykjavík 13. apríl 1960, sonur Jóhönnu Kristjónsdóttur og Jökuls Jakobssonar.
Hann hætti menntaskólanámi í sjötta bekk MR og hóf störf sem blaðamaður á Vísi í apríl 1979. Annaðist Helgarblað Vísis frá hausti 1980 til vors 1981. Umsjónarmaður Helgar-Tímans frá vori 1981 til sumars 1982. Annar umsjónarmaður Helgarblaðs DV veturinn 1984-1985. Að öðru leyti lausamaður við ýmsa fjölmiðla.
Hann hefur frá 1986 séð nær sleitulaust um þáttinn Frjálsar hendur á Rás eitt, RÚV, og jafnframt haldið nær sleitulaust úti pistlum á Rás tvö, RÚV, síðan 1987, fyrst um fjölmiðla, síðan um almenn þjóðfélagsmál.