Gunnar Theodór Eggertsson er fæddur árið 1982 og er með gráðu í bæði kvikmynda- og bókmenntafræði, enda eru skrif hans undir sterkum áhrifum frá kvikmyndum. Hann er einstaklega frjór og hugmyndaríkur höfundur og hafa þeir hæfileikar notið sín til hins ýtrasta í vinsælum barna- og ungmennabókum hans sem eru af ætt furðusagna.
Gunnar hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin 2008 fyrir fyrstu barnabók sína Steindýrin og var tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2015 fyrir Drauga-Dísu. Komið hafa út framhaldsbækur af báðum þessum sögum.
Dýr leika stórt hlutverk í sögum Gunnars Theodórs og þá ekki síst í sögum hans fyrir fullorðna lesendur. Í Köttum til varnar (2010) veltir hann fyrir sér loðinni stöðu gæludýra í borgarsamfélaginu og Sláturtíð (2019) er litrík og fersk spennusaga sem hristir duglega upp í hugmyndum fólks um stöðu dýra í heimi þar sem maðurinn ræður lögum og lofum.
Nýjasta verk Gunnars er furðusagnaflokkurinn Furðufjall sem er skrifuð í knöppum og aðgengilegum stíl fyrir börn og unglinga og kom fyrsta bindið Nornaseiður út 2021. Myndskreytingar Fífu Finnsdóttur leika stórt hlutverk í bókaflokknum.
Hægt er að skoða heimasíðu Gunnars hér.