Árni Snævarr er fæddur 1962 og lauk BA-gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands og MA-gráðu í alþjóðastjórnmálum frá CERIS í Brussel. Hann starfaði um 20 ára skeið í fjölmiðlum hérlendis, meðal annars sem fréttamaður hjá RÚV í áratug og sem yfirmaður erlendra frétta á Stöð 2 og Bylgjunni. Hann hlaut Edduverðlaun sem fréttamaður ársins 2002. Eftir að hafa gegnt starfi upplýsingafulltrúa og ritstjóra hjá ÖSE í Kosovo um eins árs skeið flutti Árni til Brussel og hefur verið yfirmaður upplýsingamála fyrir Norðurlönd hjá upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna þar í borg síðan 2005.
Árni hefur gert fjölda sjónvarpsþátta um fréttatengd málefni og heimildamyndir um fréttatengd og söguleg efni, auk þess sem hann skrifar sagnfræðirit.