Ævar Þór Benediktsson, fæddur 1984, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri og prófi úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands. Frá útskrift hefur hann leikið bæði á sviði og í sjónvarpsþáttum en einnig framleitt sitt eigið efni fyrir útvarp og sjónvarp.
Ævar sendi frá sér smásagnasafnið Stórkostlegt líf herra Rósar og fleiri sögur af ótrúlega venjulegu fólki árið 2010 en frá árinu 2011 hefur hann einbeitt sér að barna- og unglingabókum og er einn afkastamesti og vinsælasti höfundur landsins á því sviði. Fyrsta bókin í Þín eigin-bókaflokki hans, Þín eigin þjóðsaga, hlaut Bókaverðlaun barnanna og Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana sem besta íslenska barnabókin, Þitt eigið ævintýri var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Barnabókaverðlauna Reykjavíkur, og eftir Þinni eigin goðsögu var gerð vinsæl leiksýning.
Fimm ár í röð stóð Ævar fyrir lestrarátaki meðal íslenskra grunnskólabarna þar sem verðlaunin voru að verða persóna í bókum hans um bernskubrek Ævars vísindamanns. Vélmennaárásin, úr þeim flokki, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki barnabóka og Risaeðlur í Reykjavík komst á blað bandarísku verðlaunanna DeBary‘s Children‘s Science Book Award, sem sérhæfa sig í vísindabókum fyrir börn. Fyrir lestrarátökin var Ævar tilnefndur til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna, minningaverðlauna um Astrid Lindgren.
Ævar hefur hlotið fjölda annarra viðurkenninga fyrir störf sín, hann var valinn framúrskarandi ungur Íslendingur árið 2017, var í Århus 39-hópnum sem alþjóðlega barnabókahátíðin Hay Festival setti saman og taldi 39 eftirtektarverða barnabókahöfunda í Evrópu undir fertugu. Hann hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir störf sín á degi íslenskrar tungu árið 2016 og var heiðraður af samtökum móðurmálskennara 2017 fyrir framlag sitt til íslenskrar tungu.
Hér er heimasíða Ævars!