TMM1 2016

Fyrsta hefti TMM 2016 er komið út

Út er komin fyrsta hefti ársins af Tímariti Máls og menningar. Að vanda er þar fjölbreytt efni um bókmenntir og samfélag, og þar eru ljóð, sögur og umsagnir um bækur.

Meðal efnis má nefna verðlaunaljóð Dags Hjartarsonar sem hann fékk Ljóðstaf Jóns úr Vör nýlega fyrir og nýtt ljóð eftir Böðvar Guðmundsson þar sem ort er um gamlan útrásarvíking. Guðrún Nordal forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar ritar grein um bókmenntaarf Íslendinga og hvernig hann verður ávaxtaður og hans gætt á nýrri öld. Viðtal Kristínar Ómarsdóttur er á sínum stað, en að þessu sinni ræðir hún við Rögnu Sigurðardóttur. Gunnþórunn Guðmundsdóttir skrifar um bækur Jóns Gnarr en Egill Bjarnason skoðar tildrög og útbreiðslu þess siðar í ritdómum hér á landi að gefa stjörnur fyrir bækur, og sýnir fram á tilhneigingu til síaukins örlætis í stjörnugjöfinni. Jón Ólafsson heimspekingur fjallar um umræðu hér á landi um spillingu í stjórnmálum og smásaga er eftir Hauk Ingvarsson.

Nokkrar umsagnir um bækur eru í ritinu; Gísli Sigurðsson skrifar um Sturlungubækur Einars Kárasonar, Halldóra Thoroddsen um ljóð Vilborgar Dagbjartsdóttur, Steinunn Inga Óttarsdóttir um ljóð Ingunnar Snædal, Þorgeir Tryggvason um Geirmundarsögu Bergsveins Birgissonar og Sólveig Ásta Sigurðardóttir um Heimsku EÖN.

Áskriftarsími TMM er 5755600.

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning