Forlagið gefur út bækur undir merkjum Máls og menningar, Vöku-Helgafells, JPV og Iðunnar og rekur einnig metnaðarfulla kortaútgáfu. Hjá Forlaginu koma út ríflega eitt hundrað nýir titlar ár hvert; bækur af öllu tagi og gerðum og á ýmsum tungumálum. Þá kemur Tímarit Máls og menningar út fjórum sinnum á ári.
Forlagið var stofnað árið 2007 og eigandi þess er bókmenntafélagið Mál og menning. Hjá Forlaginu starfa um 40 starfsmenn.
Árið 2023 setti Forlagið á stofn Reykjavík Literary Agency sem annast réttindasölu á íslenskum bókum til erlendra útgefenda, kvikmyndaframleiðenda og annarra aðila.
Forlagið rekur tvær bókabúðir, auk vefverslunarinnar á þessari síðu.
Bókabúð Forlagsins er til húsa að Fiskislóð 39, á Grandanum í Reykjavík. Þar má finna bækur allra helstu útgefenda landsins – og ekki bara þær nýjustu heldur verulegt magn eldri titla. Á Fiskislóðinni er nægt pláss fyrir allar tegundir bóka og þær fást á kostakjörum árið um kring. Í september er þar haldinn veglegur bókamarkaður. Verslunarstjóri er Héðinn Finnsson.
hedinn@forlagid.is S: 575 5636
Opnunartími
Mánudaga til föstudaga kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 12–16.
Opnunartími er rýmkaður á bókamarkaði og í aðdraganda jóla.
Skrifstofur Forlagsins eru til húsa að Bræðraborgarstíg 7. Þar er einnig lítil verslun með nýjustu bókunum sem út koma undir merkjum Forlagsins.
forlagid@forlagid.is S: 575 5600
Kt: 600201-2390 , VSK nr: 70372
Opnunartími
September til maí:
Mánudaga til fimmtudaga kl. 9–17.
Föstudaga kl. 9:30–17.
Júní til ágúst:
Mánudaga til fimmtudaga kl. 9–16.
Föstudaga kl. 9:30–16.