Ljósa
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2011 | 242 | 2.690 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. | |||
Geisladiskur | 2011 | 3.490 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 1.990 kr. |
Ljósa
990 kr. – 3.490 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2011 | 242 | 2.690 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. | |||
Geisladiskur | 2011 | 3.490 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 1.990 kr. |
Um bókina
Ljósa elst upp seint á nítjándu öld undir hvelfdum jökli með víðsýni yfir sjó og sanda. Hana dreymir um framtíð þar sem hamingjan ríkir og sólin skín. En veruleikinn ætlar henni annað; þrátt fyrir góð efni og ástríka fjölskyldu vofir yfir henni ógn sem gefur engin grið.
Kristín Steinsdóttir hóf höfundarferil sinn þegar hún hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin 1987. Hún hefur skrifað á þriðja tug bóka og hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar, meðal annars Norrænu barnabókaverðlaunin, Sögustein og Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna. Þá var skáldsagan Á eigin vegum tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.
Ljósa er þriðja skáldsaga Kristínar fyrir fullorðna, hrífandi frásögn um gleði og sorgir einstakrar konu. Kristín Steinsdóttur hlaut bæði menningarverðlaun DV 2010 og Fjöruverðlaunin 2011 fyrir söguna um Ljósu.
Kennsluleiðbeiningar má nálgast á kennarasvæði Forlagsins.
ATH. Tvær gerðir hljóðbóka eru í boði fyrir þessa vöru. Hljóðbókin er til á geisladiski (CD eða Mp3) sem afhendist í pósti eða úr verslun en einnig er hægt að fá hljóðbók sem er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á beint í gegnum app Forlagsins eða vafra (Hljóðbók – App). Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er um 8 klukkustundir og 30 mínútur að lengd. Höfundur les.
6 umsagnir um Ljósa
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Lýsingarnar í bókinni á lífi Ljósu og viðbrögðum nánasta umhverfis hennar … eru settar fram af slíkri virðingu fyrir hrikalegum örlögum þessa fólks að eftir stendur einstæð frásögn af veröld, sem áður var lokuð og fæstir vissu mikið um. … Í þessari sögu eru margar hetjur.“
Styrmir Gunnarsson / Morgunblaðið
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Vel stíluð og vel byggð saga með frábærri persónusköpun. Saga sem spannar allan tilfinningaskalann og ómögulegt er að leggja frá sér.“
Friðrika Benónýsdóttir / Fréttablaðið
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Ljósa er mikilvægt og merkilegt verk … ekki lítið frásagnarafrek …“
Páll Baldvin Baldvinsson / Fréttatíminn
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Gríðarlega falleg bók … listilega vel gert.“
Þorgerður Sigurðardóttir / Kiljan
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„… svo dæmalaust vel skrifuð og spennandi og ekta; það er ekki oft sem maður getur með sanni sagt að skáldsaga hafi breytt manni og vanagangi hugsananna. En þannig er góður skáldskapur og Ljósa er góður skáldskapur.“
Vigdís Grímsdóttir / Viðskiptablaðið
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Hrífandi falleg bók. … Einhver besta lýsing sem ég hef lesið í íslenskri skáldsögu á geðveiki og hvernig hún getur þróast. … Bæði grátur og hlátur … greinilegt að Kristín hefur unnið mjög mikla heimildavinnu … alveg magnað verk. “
Hrafn Jökulsson / Kiljan