Hugsjór
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2012 | 74 | 3.100 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2012 | 74 | 3.100 kr. |
Um bókina
SKILGREINING
Stundum fæðast nokkrar línur.
En það sem mestu skiptir
er á milli línanna.
Ljóðabókin, Hugsjór, er komin út eftir Jóhann Hjálmarsson. Jóhann Hjálmarsson hefur í áranna rás ort ljóð og þýtt. Hann var lengi einn helsti gagnrýnandi Morgunblaðsins og skrifaði um bókmenntir og ljóðlist í ýmis safnrit.
Fyrsta ljóðabók hans, Aungull í tímanum, kom út árið 1956, þegar hann var aðeins sautján ára. Ljóðabókin Hljóðleikar frá árinu 2000 var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Ljóð Jóhanns hafa verið þýdd á um 30 tungumál og sérstakar bækur með ljóðum hans hafa komið út í Svíþjóð, Finnlandi, Noregi, Bandaríkjunum og á Spáni. Ljóðaúrval Jóhanns á ensku, Of the Same Mind, í þýðingu Christophers Burawa, fékk fyrstu verðlaun bandaríska forlagsins Toad Press 2005.
1 umsögn um Hugsjór
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
… Ljóðin eru unnin af natni og aðdáunarverðri fagmennsku og það ber að lofa. … Vel heppnuð og fagmannlega unnin ljóðabók, þar sem roskið skáld horfir yfir sviðið; veltir fyrir sér lífinu, dauðanum og flestu þar á milli.
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir / Fréttablaðið