Árangursríki stjórnandinn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2023 | 208 | 5.190 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2023 | 208 | 5.190 kr. |
Um bókina
Hvað gerir stjórnanda árangursríkan? Í Árangursríka stjórnandanum eftir Peter F. Drucker segir að stjórnendum sé fyrst og fremst ætlað að koma réttu hlutunum í verk. Það þýðir einfaldlega að ætlast er til þess að þeir séu árangursríkir í starfi. Árangursríkir stjórnendur hafa jafn mikinn tíma og aðrir en þeir nýta tímann betur og kunna að forgangsraða.
Í bókinni dregur Drucker fram fimm grundvallaratriði sem reynast ættu öllum stjórnendum gott veganesti:
- Hvernig við nýtum tíma okkar á árangursríkan hátt
- Hvernig við uppgötvum og nýtum styrkleika okkar
- Hvernig við finnum út hvað við getum lagt af mörkum
- Hvernig við einbeitum okkur að því sem skiptir máli
- Hvernig við tökum árangursríkar ákvarðanir
Bókin gagnast öllum sem bera ábyrgð í starfi, hvort sem að það er í fyrirtæki, á sjúkrahúsi, í skóla eða opinberri stofnun.
Peter F. Drucker (1909-2005) er frumkvöðull á sviði stjórnunarfræða og hafa verk hans verið nýtt sem kennslurit í háskólum, fyrirtækjum og stofnunum um heim allan. Eftir Drucker liggja samtals 39 bækur og yfir hundrað greinar sem lögðu grunninn að því sem á okkar dögum kallast stjórnunarfræði.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar