Aprílsólarkuldi
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 143 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2020 | 1.490 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. |
Aprílsólarkuldi
1.490 kr. – 3.490 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 143 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2020 | 1.490 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. |
Um bókina
Þegar Elísabet Jökulsdóttir býður lesendum með í innra ferðalag gildir miðinn alla leið. Sú tilfinning fylgir mér þegar ég les Aprílsólarkulda; ég fæ að lifa með í veruleika aðalpersónunnar Védísar, hvort sem þar ríkir sorg sem kann ekki að vera til, ástin innilega í öllum sínum fimleikum eða ein-semdin þegar orðin hætta að virka.
Aprílsólarkuldi lýsir föðurmissi Védísar, skóla-stúlku sem er einstæð móðir; ástinni sem kemur næstum jafn óvænt og ferlinu inn í sjúkdóm, öllu í einni augnablikseilífð. Reykjavík og hennar fólk fær á sig sérstakan blæ með lýsingum í ekta Elísabetarstíl sem hér er djúptær, litaður flæði og frelsi ljóðsins.
Hún kann að láta húsin lifna og anda líkt og landslag, líka bilið á milli þeirra. Hvergi skortir skarpskyggni né húmor í mannlýsingum, lituðum af tíðaranda í lok áttunda áratugarins: einn og annar Kristjaníufari kominn heim, hasspartí hvunndagsmatur og farið að draga úr hippalátum ’68-kynslóðarinnar; nú á að fóta sig í frelsinu.
Hvað gerist milli fólks þegar orðin bregðast? Glata merkingunni. Þegar tengslin við tungumálið bresta, hvað er þá til ráða? „… því heimurinn mun ekki standa nema vegna merkingar, annars mun hann sáldrast niður og manneskjan getur annars ekki lifað í heiminum,“ segir í sögunni.
Aprílsólarkuldi hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2020.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Guðrún S. Gísladóttir les.
Hér má hlusta á hljóðbrot úr bókinni:
8 umsagnir um Aprílsólarkuldi
embla –
„Mögnuð verðlaunabók um maníuna, ástina, föðurinn og móðurina sem bregður upp magnaðri svipmynd af meira en 40 ára gamalli Reykjavík.“
Ásgeir H. Ingólfsson / Stundin
embla –
„Stíllinn er einstakur en á sama tíma einfaldur og flæðir fallega áfram. Hvert orð skiptir máli á sama tíma og engu orði er ofaukið. Elísabet hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir bókina og verða þau að teljast verðskulduð.“
Ragnhildur Þrastardóttir / Morgunblaðið
embla –
„Ljóðræn og manneskjuleg saga sem lætur lítið yfir sér í fyrstu en býr yfir mögnuðum galdri.“
Guðrún Baldvinsdóttir / Fréttablaðið
embla –
„Í Aprílsólarkulda tekst Elísabet Jökulsdóttir á við föðurmissi, ástina og geðhvörf. Þetta er sjálfsævisögulegt verk um glímu við fortíðina þar sem sambandsleysi, söknuður, bóhemlíf og óheftur sköpunarkraftur takast á og leiða til mikilla átaka innan sem utan líkamans. Hér er skáldskapur á ferð sem veitir innsýn í heim níunda áratugarins um leið og hann fjallar um leitina að sjálfsskilningi, ást og umhyggju.“
Umsögn dómnefndar / Fjöruverðlaunin
embla –
„Aprílsólarkuldi er tilfinningarík og ljóðræn frásögn um föðurmissi, ást, sorg og geðveiki. Næmni Elísabetar Jökulsdóttur sem sést hefur í ljóðum hennar skilar sér í vel í skáldsagnaforminu.“
Umsögn dómnefndar / Íslensku bókmenntaverðlaunin
embla –
„Hún hefur skrifað mjög mikið út frá persónulegri reynslu en þetta er heillegri mynd en maður hefur fengið af Elísabetu.“
Egill Helgason / Kiljan
embla –
„Það koma rosalega skýrar og flottar myndir, sem eru ljóðrænar í bókinni … Það koma ljóðleiftur inn í textann sem eru alveg dásamleg.“
Sunna Dís / Kiljan
embla –
„Það er svo gaman að sjá hana stíga inn í form sem hún hefur fullkomið vald á.“
Þorgeir Tryggvason / Kiljan