Hvernig verður munaðarlaus, franskur strákur a lukkudýri íslenska fótboltalandsliðsins?
Um það fjallar þessi spennandi bók þar sem við sögu koma veðmál um allt milli himins og jarðar, týndir dýrgripir og íslensku knattspyrnuhetjurnar frá EM í Frakklandi – en líka sorglegir atburðir úr fortíðinni og flókin vandamál sem leysast ekki þótt boltinn endi í markinu.
Fáir þekkja íslenska karlalandsliðið í fótbolta betur en Þorgrímur Þráinsson sem hefur fylgt því á alla leiki undanfarin ár. Henri og hetjurnar er skáldsaga sem gerist þessa leiftrandi skemmtilegu júnídaga þegar öll íslenska þjóðin gekk af göflunum og fangar EM-stemmninguna óaðfinnanlega.
Árni Þór –
„Henri litli minnir mig á sjálfan mig þegar ég var á hans aldri, dálítill villingur.“
Ragnar Sigurðsson landsliðsmaður og vinur Henri í bókinni
Árni Þór –
„Bókin um okkur og Henri hélt mér svo vel vakandi að ég sofnaði ekki fyrr en ég hafði klárað hana.“
Gylfi Sigurðsson landsliðsmaður og ein af söguhetjunum
Árni Þór –
„Ég var sjálfur spenntur yfir því hvort mér tækist að finna Henri þegar hann týndist í París.“
Birkir Bjarnason landsliðsmaður og ein af söguhetjunum
Árni Þór –
„Það er mér mikill heiður að fá að vera ein af hetjunum í bókinni hans Þorgríms.“
Aron Gunnarsson fyrirliði landsliðsins í knattspyrnu