Vonarstræti
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2008 | 990 kr. | |||
Kilja | 2009 | 192 | 2.190 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2008 | 990 kr. | |||
Kilja | 2009 | 192 | 2.190 kr. |
Um bókina
Snemma árs 1908 fóru Skúli og Theodóra Thoroddsen til Kaupmannahafnar til að taka þátt í samningum um framtíð Íslands í danska ríkinu. Um haustið fluttu þau frá Bessastöðum í Vonarstræti. En á þessum fáu mánuðum hafði allt breyst. Íslendingar höfðu gert hljóðláta uppreisn og stefndu nú að sjálfstæði. Skúli var orðinn þjóðhetja en skuggi veikinda og dauða vofði yfir fjölskyldunni í Vonarstræti 12.
Húsið stendur enn þótt flutningur þess sé á dagskrá í náinni framtíð, og bókin er að hálfu skrifuð til að varpa ljósi á þá merkilegu sögu sem í húsinu býr og ber að varðveita.
Vonarstræti eftir Ármann Jakobsson (2008) er söguleg skáldsaga um miklar hugsjónir, mannlega veikleika og eina af fáum uppreisnum sem gerðar hafa verið á Íslandi. Þó að sagan gerist nákvæmlega öld áður en hún var rituð kallast hún á við samtímann þar sem hugtökin sjálfstæði og hugmyndafræði eru öllum að óvörum komin aftur á dagskrá í fyrsta sinn um langt skeið. Bókin fjallar um að setja markið hátt og láta ekki raunsæið halda aftur af sér. „Stundum verður hið ómögulega mögulegt,“ segir á einum stað í bókinni, og það er mikilvægt að muna það þegar á brattann sækir.
Ármann Jakobsson hefur ritað greinar um samfélags- og menningarmál í dagblöð og tímarit um árabil, auk fræðigreina um íslenskar bókmenntir og fræðibókarinnar Tolkien og hringurinn árið 2003. Í vor kom út ljóðabókin Fréttir frá mínu landi. Vonarstræti er hans fyrsta skáldsaga.
5 umsagnir um Vonarstræti
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Einkennilega tímabær skáldsaga. Sjaldgæft að maður beinlínis óski þess um skáldsögu að hún væri helmingi þykkari.“
Hrafn Jökulsson / DV
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Vonarstræti er vel afmörkuð skáldsaga, stutt og snörp… hún spannar ekki langan tíma en sögumaðurinn smíðar ótalmargar brýr yfir í önnur tímabil. Söguleg yfirsýn er hér með öðrum orðum afar mikil… skrifuð af innlifun…“
Hjalti Snær Ægisson / Víðsjá
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Vandað Vonarstræti…fær penni…frumleg.“
Gerður Kristný / Mannamál
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Kom mér skemmtilega á óvart… Bók sem gaman er að lesa.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Ármann Jakobsson er öruggur penni og frásögnin er alltaf fumlaus og efnistök góð… [hann] miðlar heilsteyptri frásögn sem heldur lesandanum allt til loka… Vonarstræti er fróðlegt og læsilegt verk sem ætti að getað höfðað til margra.“
Soffía Auður Birgisdóttir / Morgunblaðið