Víti úr Gleðileiknum guðdómlega

Útgefandi: Önnur forl
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2018 498 9.980 kr.
spinner

Víti úr Gleðileiknum guðdómlega

Útgefandi : Önnur forl

9.980 kr.

Víti úr Gleðileiknum guðdómlega
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2018 498 9.980 kr.
spinner

Um bókina

Virðingarstaða skáldsins Dantes Alighieri hefur verið óumdeild í heimi bókmenntanna um aldaraðir. Það er skiljanlegt í ljósi þess hve einstæður kveðskapur hans er andríkur og djúpur. Yfirleitt nálgast þýðendur hann af þvílíkri lotningu að skringilegheit og fjörtök andans komast varla að.

Í þýðingu Einars Thoroddsen á Gleiðileik Dantes má heyra nýjan tón. Einar leyfir sér nýstárlegt orðfæri og jafnvel kíminn undirtón til að skila ferskleika verksins og láta ekki hátíðleikann trufla lestrarnautnina. Þó einkennist þýðingin af kliðsterkri hrynjandi og tryggð við brag og frumtexta.

Dante fæddist í borginni Flórens á norðanverðri Ítalíu árið 1265 og var gerður útlægur þaðan árið 1302. Hann yrkir Gleðileikinn í útlegðinni þar sem hann gerir upp þær pólitísku væringar sem þá geisuðu um Ítalíuskagann. Eins og öll mikil listaverk er Gleðileikur Dantes í senn dæmigerður fyrir tíðaranda miðalda og svo frumlegur að hann á sér enga hliðstæðu. Dante dó í borginni Ravenna árið 1321.

Tengdar bækur

Products not found

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning