Víghólar
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 434 | 2.590 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 434 | 2.590 kr. |
Um bókina
Vinnuvélar verktakafyrirtækis eru stórskemmdar í skjóli nætur. Illa útleikin lík finnast á nokkrum stöðum á landinu. Margt bendir til að þarna séu að verki aðilar úr öðrum heimi.
Lögreglan fær Bergrúnu Búadóttur huldumiðil til að aðstoða við rannsókn málsins. Fljótlega kemur í ljós að myrk og máttug öfl seilast til aukinna valda bæði í Mannheimi og Hulduheimi.
Bergrún og Brá, tvítug dóttir hennar, leggja af stað í ferðalag sem fljótlega umbreytist í háskaför þar sem þær þurfa að kljást við óútreiknanlega og máttuga andstæðinga. Samhliða því myndast mikil spenna í sambandi mæðgnanna sem verður til þess að leiðir þeirra skilja.
Emil Hjörvar Petersen er helsti frumkvöðull á sviði furðusagna hér á landi. Hann hlaut mikið lof fyrir þríleik sinn Saga eftirlifenda.