Vestfirskar sagnir 2. hefti
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2000 | 1.090 kr. |
Vestfirskar sagnir 2. hefti
1.090 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2000 | 1.090 kr. |
Um bókina
Á árunum 1933-1937 kom út í mörgum heftum sagnabálkurinn Vestfirskar sagnir sem Helgi Guðmundsson safnaði og skráði. Útgefandi var Bókaverslun Guðmundar Gamalíelssonar. Með því að þessi merki vestfirski sagnaarfur hefur verið ófáanlegur í áratugi, hefur Vestfirska forlagið nú ákveðið að hefja endurútgáfu á honum í heiðursskyni við þá félaga. Nú má það vera að sumum finnist hinar vestfirsku sögur og sagnir ekki merkilegar bókmenntir. En er það svo?Menn geta deilt um það eins og annað. En hér er um að ræða reynsluheim forfeðranna í harðbýlum landshluta, en margar af þeim frásögnum færir Helgi í fyrsta skipti til bókar eftir skilgóðum heimildarmönnum. Það hlýtur að vera nokkurs virði, en margir telja þjóðsögur og sagnir einn af fjársjóðum Íslands sem við megum ekki gleyma og týna