Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Veisla í greninu
Útgefandi: Angústúra
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 112 | 3.490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 112 | 3.490 kr. |
Um bókina
Tochtli býr í höll. Hann er mjög hrifinn af höttum, samúræjum, fallöxum og orðabókum en það sem hann langar allra mest í er nýtt gæludýr fyrir einkadýragarðinn sinn, dvergflóðhest frá Líberíu.
Faðir Tochtli er valdamikill eiturlyfjabarón og Tochtli elst því upp í íburðarmiklum felustað sem hann deilir með leigumorðingjum, vændiskonum, eiturlyfjasölum, þjónustufólki og einstaka spilltum stjórnmálamanni.
Veisla í greninu er meistaralega skrifuð svört kómedía sem segir frá brjálaðri ferð sem farin er til að uppfylla óskir barns.
Veisla í greninu hefur komið út á 17 tungumálum.
1 umsögn um Veisla í greninu
Kristrun Hauksdottir –
„Juan Pablo Villalobos tekst hið ómögulega. Hann fer með lesandann á háskalegar slóðir mexíkósku eiturlyfjamafíunnar og sýnir honum grimma veröld með augum barnslegs sakleysis. Fyrir sögumanni eru myrkraverkin í glæsihöllinni eðilegur hluti tilverunnar. Og hver vildi ekki eiga pabba sem getur gefið honum eins margar hatta og hann langar í og líka dvergflóðhest? Veisla í greninu er engu lík og situr lengi eftir í huganum að lestri loknum.“
– Sjón