Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Vatnajökulsþjóðgarður
Útgefandi: JPV
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2021 | 176 | 6.590 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2021 | 176 | 6.590 kr. |
Um bókina
Hvítur haddur Vatnajökuls er höfuðprýði Íslands. Hann virðist eilífur en ekki er allt sem sýnist. Ofsafengnir jarðeldar rjúfa skörð í jökulísinn og landið í kring með tilheyrandi hraunrennsli, öskufalli og jökulhlaupum og bráðahlýnun jarðar ógnar sjálfri tilvist jökulsins. Þessi síkvika deigla elds og íss er þungamiðja Vatnajökulsþjóðgarðs. Þjóðgarðurinn var stofnaður árið 2008 og lýstur heimsminjasvæði, arfleið alls mannkyns, árið 2019.
Í þessari bók lýsir Snorri Baldursson líffræðingur einstakri náttúru, sögu og uppbyggingu þjóðgarðsins í máli og myndum og fjallar um hvaða tilkall hann á til æðstu gæðavottunar sem veitt er dýrmætum landsvæðum á heimsvísu.
1 umsögn um Vatnajökulsþjóðgarður
embla –
„Lesandinn verður margs fróðari um jökla- og jarðfræði, lífríki og mikilfenglegar náttúruminjar svæðisins og verndun þess. Megintexti, kort, skýringarmyndir og ljósmyndir gefa margbreytilega mynd af viðfangsefninu. Höfundur leiðir lesandann í gegnum sérstöðu Vatnajökulsþjóðgarðs á skýran og fróðlegan hátt með fallegu myndefni. Hrífandi falleg bók.“
Umsögn dómnefndar Íslensku bókmenntaverðlaunanna