Úti að aka
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2023 | App | 1.490 kr. | ||
Innbundin | 2006 | 291 | 1.545 kr. | ||
Rafbók | 2022 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2023 | App | 1.490 kr. | ||
Innbundin | 2006 | 291 | 1.545 kr. | ||
Rafbók | 2022 | 990 kr. |
Um bókina
Úti á aka – á reykspúandi Kadilakk yfir Ameríku eftir Einar Kárason og Ólaf Gunnarsson. Frá unglingsárum hafði rithöfundana Ólaf Gunnarsson og Einar Kárason dreymt um að keyra þvert yfir Bandaríkin, heimkynni indjána og kúreka, í krómuðum og vængjuðum kagga. Hugmyndin var að aka frá New York til Chicago og fylgja síðan Route 66, þeirri fornfrægu þjóðleið, til Los Angeles og þræða loks Vesturströndina upp til San Francisco.
Sumarið 2006 létu þeir þennan gamla strákadraum rætast og flugu ásamt Aðalsteini Ásgeirssyni bifvélavirkja, Sveini Magnúsi Sveinssyni kvikmyndagerðarmanni og Jóhanni Páli Valdimarssyni útgefanda til New York á vit ævintýra og hvíts gullaldarmódels af Kadilakk.
Þessi reykspúandi för stranda á milli reyndi ekki síður á mennina en Kaddann en hér segja félagarnir saman óborganlega ferðasögu sína þar sem ekkert er dregið undan. Bókin er ríkulega skreytt myndum eftir Jóhann Pál Valdimarsson.
„Við Einar höfum verið vinir í hartnær þrjá áratugi og erum báðir konungbornir rithöfundar þótt ég segi sjálfur frá en stundum sótti að mér efi um að það yrði pláss fyrir okkur báða í sömu bók og sama bíl.“ (Ólafur Gunnarsson)
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 3 klukkustundir og 9 mínútur að lengd. Einar Kárason og Jóhann Páll Valdimarsson lesa.
Hér má hlusta á hljóðbrot úr bókinni:
4 umsagnir um Úti að aka
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Yndisleg bók.“
Sigurður G. Tómasson / Útvarp Saga
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Úti að aka er ferðabók í fyrsta flokki. Hún lýsir landi og þjóð á lifandi og skemmtilegan hátt, en ekki síst ferðalöngunum sjálfum … Ameríski draumurinn verður að veruleika um stund hjá þessum miðaldra köllum sem verða unglingar á ný … Slástu í för með þeim … það er frábær skemmtun.“
Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Þetta er ein af þessum bókum þar sem maður situr í sófanum einn og svo fer maður að hlæja … og líður eins og bjána.“
Svavar Halldórsson / Ísland í bítið, Stöð 2
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Spennandi hvort bíllinn kemst á leiðarenda … það kemur allur andskotinn upp … reynast allir vera einhver iðandi kvika og tilfinningabúnt … mér finnst það virka ferlega vel.“
Jón Yngvi Jóhannsson / Kastljós