Tungutak – Hljóðfræði og hljóðkerfisfræði
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2010 | 172 | 3.390 kr. |
Tungutak – Hljóðfræði og hljóðkerfisfræði
3.390 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2010 | 172 | 3.390 kr. |
Um bókina
Námsefnisflokkurinn Tungutak, eftir Ásdísi Arnalds og Sólveigu Einarsdóttur kennara við Kvennaskólann í Reykjavík, er ætlaður nemendum á framhaldsskólastigi.
Í Tungutaki – hljóðfræði og hljóðkerfisfræði er fjallað m.a. um grundvallarhugtök hljóðfræðinnar, myndunarstað og myndunarhátt málhljóða í íslensku, atkvæðaskiptingu, hljóðritun og íslenskar framburðarmállýskur.
Mikið er lagt upp úr því að setja efnið fram á skýran og greinargóðan hátt í bókunum. Áhersla er lögð á fjölbreytni og leitast við að gera nemendur meðvitaða og áhugasama um móðurmál sitt. Margvísleg verkefni eru í bókunum sem til þess eru gerð að efla skilning nemenda á efninu og hvetja þá til sjálfstæðrar hugsunar. Myndir í bókunum eru eftir Hugleik Dagsson.
Kennsluleiðbeiningar og lausnir má finna á kennarasvæði Forlagsins. Aðgangur að því er bundinn við lykilorð sem fæst með því að senda póst á netfangið forlagid@forlagid.is.