Þorsteinn frá Hamri – Ritsafn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2004 | 4.655 kr. |
Þorsteinn frá Hamri – Ritsafn
4.655 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2004 | 4.655 kr. |
Um bókina
Ritsafn Þorsteins frá Hamri kom fyrst út 1998 og var endurútgefið 2004. Í því eru allar útgefnar bækur Þorsteins fram til 1998 og ítarlegur formáli Njarðar P. Njarðvík. Safnið er prýtt myndum eftir Tryggva Ólafsson. Auk þrettán ljóðabóka geymir þetta ritsafn þrjár skáldsögur hans og þjóðlegan sagnaþátt sem hann hefur fært í letur af sömu alúð og skáldskap sinn.
Ritsafnið endurspeglar því í senn fjölbreytt viðfangsefni og óbrigðula stílgáfu Þorsteins frá Hamri.
Bækurnar í ritsafninu eru:
Í svörtum kufli (1958), Tannfé handa nýjum heimi (1960), Lifandi manna land (1962), Langnætti á Kaldadal (1964), Jórvík (1967), Himinbjargarsaga eða Skógardraumur (1969), Veðrahjálmur (1972), Möttull kongungur eða Caterpillar (1974), Fiðrið úr sæng Daladrottningar (1977), Haust í Skírisskógi (1980), Spjótalög á spegil (1982), Ný ljóð (1985), Urðargaldur (1987), Vatns götur og blóðs (1989), Hallgrímur smali og húsfreyjan á Bjargi (1990), Sæfarinn sofandi (1992), Það talar í trjánum (1995).