Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Tímar í lífi þjóðar
Útgefandi: VH
Now go add some variable products!
Now go add some variable products!
Um bókina
Tíma í lífi þjóðar kallaði Indriði G. Þorsteinsson þríleikinn Land og syni, Norðan við stríð og 79 af stöðinni. Þær komu út á einni bók árið 2004 með formála eftir Kristján B. Jónasson bókmenntafræðing.
Þessar þrjár sögur hafa notið einstakra vinsælda síðan þær komu út fyrst, og tvær þeirra, Land og synir og 79 af stöðinni, voru kvikmyndaðar. Saman mynda þær samfellu þar sem sagt er frá róttækustu samfélagsbreytingum í sögu Íslendinga í kjölfar kreppu, hernáms og breyttra atvinnuhátta. Í bókum sínum brá Indriði upp röntgenmynd af tilfinningaróti tveggja kynslóða og skóp í leiðinni sígildan skáldskap um mannleg örlög.