Tímakistan
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2013 | 296 | 3.890 kr. | ||
Rafbók | 2013 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2013 | 296 | 3.890 kr. | ||
Rafbók | 2013 | 990 kr. |
Um bókina
Það sigrar enginn heiminn sem ekki getur sigrað tímann.
Eitthvað furðulegt hefur gerst. Mannkynið húkir í draugalegum kössum og bíður betri tíma. Á meðan hefur skógurinn yfirtekið borgirnar, úlfar ráfa um götur og skógarbirnir hafa hertekið verslunarmiðstöðvar. Hvað kom fyrir? Enginn getur svarað því nema gömul kona sem vakir í einu húsanna. Áratugum saman hefur hún safnað sögum um prinsessuna af Pangeu og föður hennar, Dímon konung, sem í árdaga sigraði heiminn og reyndi að því loknu að sigra tímann.
Tímakistan er margslungið ævintýri sem teygir anga sína frá fjarlægustu fortíð til ókominna tíma. Andri Snær er þekktur fyrir bækur sínar sem hafa komið út í meira en 30 löndum. Fyrir Söguna af bláa hnettinum hlaut hann meðal annars Íslensku bókmenntaverðlaunin og Heiðursverðlaun Janusz Korczak.
4 umsagnir um Tímakistan
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„… bráðskemmtilegt ævintýri sem ólgar af hugmyndaauðgi og hrífur lesandann með sér inn í óþekktan heim sem er í senn heillandi og ógnvekjandi.“
Friðrika Benónýsdóttir / Fréttablaðið
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Stærsti konfektkassi sem ég hef komist í sem skrifaður hefur verið á íslenskri tungu… Þetta er sælgæti hugans. Vá! Hún er svo góð að ég gleymdi að gera athugasemdir … Þetta er bók fyrir 3 ára, fyrir 30 ára, fyrir 300 ára.“
Auður Haraldsdóttir / Virkir morgnar, Rás 2
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Mér finnst þetta skemmtileg og hugmyndarík bók … í heildina bráðskemmtilegt … þetta er vel skrifað og þetta er skemmtilegt og þetta heldur athyglinni … Stórskemmtilegt og mjög góð bók og ég efast um að það sé betri íslensk barnabók á markaðnum þetta árið…“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„… Tímakistan [er] fyrst og fremst afskaplega skemmtileg lesning … Hér sannast enn og aftur að Andri Snær er einn af okkar allra snjöllustu sögumönnum.“
Anna Lilja Þórisdóttir / Morgunblaðið