Svartalogn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 381 | 5.990 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 990 kr. | |||
Geisladiskur | 2016 | Mp3 | 890 kr. | ||
Kilja | 2017 | 381 | 3.490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 381 | 5.990 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 990 kr. | |||
Geisladiskur | 2016 | Mp3 | 890 kr. | ||
Kilja | 2017 | 381 | 3.490 kr. |
Um bókina
Þorpið virtist friðsælt í vetrarskrúðanum en svo kom úrhellið, skolaði burt hlýrri yfirhöfninni og í ljós kom að það var í raun og veru illa klætt – var kannski í engu innan undir.
Eftir margra mánaða atvinnuleit heldur Flóra vestur á firði til að mála hús í sjávarþorpi. Þar kynnist hún organista og þremur útlendum konum sem vinna í fiski; allar eiga þær sögu sem hefur leitt þær á þennan stað, allar glíma við sorgir – en syngja eins og englar. Í einangrun þorpsins leikur veðrið á öll sín hljóðfæri og sálin tekur undir af fullum þunga.
Svartalogn fjallar um ást, vináttu og samfélag sem heldur utan um fólk, eða heldur því í heljargreipum, eftir því hvernig á það er litið.
Kristín Marja Baldursdóttir hefur skrifað skáldsögur, smásögur og leikrit. Bækur hennar hafa verið gefnar út víða erlendis og notið mikillar hylli, ekki síst sögurnar um listakonuna Karitas. Kristín Marja hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín, meðal annars tilnefningu til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.
ATH. Hljóðbókin er aðeins til á geisladiski (CD eða Mp3) sem er afhentur í pósti eða sóttur í Bókabúð Forlagsins. Hér má finna hljóðbækur okkar sem eru aðgengilegar rafrænt í streymi.
4 umsagnir um Svartalogn
Árni Þór –
„Bók sem sver sig í ætt við bestu verk höfundarins, vel skrifuð, áhugaverð og spennandi saga sem heldur lesandanum vel við efnið … Textinn er lipur og auðlæsilegur, söguþráðurinn spennandi og innsýnin í persónurnar áhugaverð og gefandi.“
Brynhildur Björnsdóttir / Fréttablaðið
Árni Þór –
„Persónurnar eru allar vel skapaðar og áhugaverðar, eiga sína forsögu og framtíð. Frásögnin rennur ljúflega með fallegum ljóðrænum blæ.“
Jóhanna María Einarsdóttir / DV
Árni Þór –
„Þessi skáldsaga Kristínar Marju er einstaklega falleg og oft á tíðum mjög spennandi. Persónusköpunin er margslungin og eftir lesturinn finnst manni eins og maður þekki alla í litla plássinu fyrir vestan … Svartalogn er falleg og áhrifamikil saga…“
Guðrún Baldvinsdóttir / Víðsjá
Árni Þór –
„Svartalogn er vel skrifuð og sannfærandi samtímasaga sem heldur lesandanum við efnið … Saga kvennanna er mikil og áhugaverð og höfundur nær að skila andanum í þorpinu til lesandans sem finnst hann verða hluti af því, maður vill taka þátt í samfélaginu og leggja sitt af mörkum til lífsins eftir lesturinn og það eru góðar skáldsögur sem hafa slík áhrif.“
Ingveldur Geirsdóttir / Morgunblaðið