Sumarblóm og heimsins grjót
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2023 | App | 2.990 kr. | ||
Kilja | 2023 | 295 | 3.690 kr. | ||
Rafbók | 2023 | 2.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2023 | App | 2.990 kr. | ||
Kilja | 2023 | 295 | 3.690 kr. | ||
Rafbók | 2023 | 2.990 kr. |
Um bókina
Sumarblóm og heimsins grjót er grípandi örlagasaga um ást og vináttu, vonir og vonbrigði, flókin fjölskyldubönd – en ekki síst um aðstæður kvenna og óvenjulegar leiðir til að bjarga sér við erfiðar aðstæður.
Í byrjun síðustu aldar blasir fátt annað við fátækri stúlku í litlum firði en að giftast, eignast börn, strita ævilangt á sama stað eins og formæðurnar. En Sóleyjar bíður öðruvísi líf og örlögin bera hana burt úr firðinum, til móts við nýja tíma og nýjar hugmyndir. Þegar hún stendur uppi ein með nýfætt barn þarf hún að gangast undir samkomulag sem færir henni bæði frelsi og fjötra. Seiglan fleytir henni gegnum brimrót áfalla og erfiðleika, lífsgleði og traustir vinir halda henni uppi þegar reynir á. Og stundum virðist hamingjan í sjónmáli.
Þetta er fyrsta skáldsaga Sigrúnar Ölbu Sigurðardóttur sem byggir söguna að hluta til á raunverulegum atburðum og persónum.
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 7 klukkustundir og 18 mínútur að lengd. Þórunn Erna Clausen les.
Hér má hlusta á brot úr fyrsta kafla hljóðbókarinnar:
2 umsagnir um Sumarblóm og heimsins grjót
embla –
„Sigrún Alba Sigurðardóttir hefur sent frá sér góða bók sem óhætt er að mæla með. Hún er á sama tíma aðgengileg og vönduð og rennur einstaklega vel – algjört hámlestrarefni á góðum sumardegi.“
Ingibjörg Iða Auðunardóttir / Morgunblaðið
embla –
„Hér er á ferðinni frábær söguleg skáldsaga sem er tilvalið að lesa í bústað, á ströndinni eða í tjaldútilegunni. Eða bara heima í sófa á meðan rigningin bylur á gluggunum.“
Katrín Lilja / Lestrarklefinn