Stúlka með höfuð
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2015 | 321 | 3.495 kr. | ||
Mjúk spjöld | 2015 | 321 | 4.290 kr. | ||
Rafbók | 2015 | 990 kr. |
Stúlka með höfuð
990 kr. – 4.290 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2015 | 321 | 3.495 kr. | ||
Mjúk spjöld | 2015 | 321 | 4.290 kr. | ||
Rafbók | 2015 | 990 kr. |
Um bókina
Hann kenndi mér að halda mig á mottunni um leið og hann gerði mig reiða svo mig langaði að slíta af mér hlekki. Þar er spennan. Það sem gerir lífið spennandi. Að syndga og slíta af sér hlekki og taka út refsinguna. Þessi línudans á línunni voðalegu, að vilja vera á mörkunum og teygja þau út svo heimurinn skáni. Að bögglast við að vera hamingjusamur í heimi þar sem næstum ekkert má.
Þórunn Jarla Valdimarsdóttir segir hér frá uppvexti sínum í Reykjavík rokksins og hippaáranna, þar sem erfiður skilnaður foreldranna varpaði skugga á gleðina, frá frjálsu stúdentalífi í Lundi og Mexíkó, kommúnum, ástmönnum og litríkum samferðamönnum. Opinská frásögnin er ofin trega og hamingju, léttleika og djúpum söknuði. Bókin er sjálfstætt framhald hinna marglofuðu Stúlku með fingur og Stúlku með maga, þar sem Þórunn notaði heimildir og skáldlega túlkun til að segja sögu móður sinnar og formæðra.
3 umsagnir um Stúlka með höfuð
Bjarni Guðmarsson –
„… hún er frumlegri en flestir aðrir höfundar …“
Egill Helgason / Kiljan
Bjarni Guðmarsson –
„… lýsingar á mönnum og málefnum eru afar skrautlegar og beinskeyttar … Á köflum eru lýsingar Þórunnar svo kostulegar að hláturinn bókstaflega sýður í manni … Aldrei hefur verið skrifuð sjálfsævisaga á Íslandi af jafnmikilli bersögli. Öllum hefðbundnum mörkum er ýtt til hliðar og sagan sögð með nístandi einlægni og af glaðværð án þess þó að höfundur falli í þá gryfju að klæmast. Þessi bók situr í manni.“
Reynir Traustason/Stundin
Bjarni Guðmarsson –
„Djúpar tilfinningar eru spennandi í meðförum Þórunnar þar sem hún leyfir skáldinu að skína. Lætur hjartað ráða för fremur en línulega skynsemi sagnfræðingins … Með því að hleypa lesandanum svona djúpt inn í tilfinningalíf sitt og með því að vera einlæg, hrein og bein um sitt nánasta fólk tekst Þórunni að draga upp skýrar og sterkar myndir af samferðafólki sínu sem og samfélagslegum samtíma … Falleg, tilfinningarík og skemmtilega ofin sjálfævisaga sem gefur sterka mynd af höfundi og samferðafólki.“
Magnús Guðmundsson/Fréttablaðið