Stormsker – Fólkið sem fangaði vindinn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2018 | 257 | 4.290 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 1.990 kr. |
Stormsker – Fólkið sem fangaði vindinn
990 kr. – 4.290 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2018 | 257 | 4.290 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 1.990 kr. |
Um bókina
„Þetta kvöld hurfu eldhúshnífar og garðklippur og flugbeittar sagir með dularfullum hætti úr skúffum, geymslum og bílskúrum um alla eyjuna. Verkfærin hurfu líkt og hendi væri veifað, svo hljóðlega að enginn tók eftir því. Það voru vitanlega börnin sem höfðu hnuplað þeim og geymt undir sænginni þegar þau lögðust til svefns.“
Ópus er bara venjulegur drengur en dag nokkurn fær hann skilaboð frá sjálfum vindinum. Á sama tíma er ríkasti maður í heimi sestur að á eyjunni hans Ópusar og byrjaður að reisa risastór siglutré í þúsundatali. Máttug öfl eru leyst úr læðingi og innan skamms er framtíð plánetunnar í húfi. Vinirnir Ópus og Fífa þurfa að leggja allt í sölurnar til að frelsa vindinn.
Stormsker – Fólkið sem fangaði vindinn eftir Birki Blæ Ingólfsson hlýtur Íslensku barnabókaverðlaunin 2018. Hörkuspennandi fantasía fyrir stálpaða krakka.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er um 6 klukkustundir að lengd. Birkir Blær og Vala Kristín Eiríksdóttir lesa.
Hér má hlusta á fyrsta kafla streymishljóðbókarinnar:
4 umsagnir um Stormsker – Fólkið sem fangaði vindinn
Arnar Tómas –
„Þegar horft er til heildarmyndarinnar er Stormsker góð frumraun og tilhlökkun að fylgjast áfram með Birki Blæ á þessu sviði.“
Júlía Margrét Alexandersdóttir / Morgunblaðið
Arnar Tómas –
„Umhverfis- og náttúruvernd er framarlega í táknkerfi bókarinnar en þar má einnig finna skemmtilegar og oft nístandi pælingar um tímann.“
Brynhildur Björnsdóttir / Fréttablaðið
Arnar Tómas –
„Barátta barnanna (…) er æsispennandi, svo spennandi að undirrituð samþykkti fúslega að lesa „einn kafla í viðbót“ fyrir tæplega sjö ára hlustanda þótt löngu væri komið fram yfir háttatíma.“
Marianna Clara Luthersdóttir / Bókmenntaborgin
Arnar Tómas –
„Vindurinn gerir loftið lifandi. Þess vegna kolféll ég fyrir Stormskeri, því innst inni elska ég vindinn og vonda veðrið. Hann er Ísland.“
Katrín Lilja / Lestrarklefinn